Skilmálar

Skilmálar

Við hjá Gyllta Kettinum leggjum mikla áherslu á að veita viðskiptavinum okkar persónulega og góða þjónustu. Hér koma upplýsingar um þá skilmála sem verslunin gefur sér. Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar þá svörum við fyrirspurnum á gylltikotturinn@gylltikotturinn.is

Pantanir sem berast fyrir kl. 13 á virkum dögum eru sendar samdægurs, annars næsta virka dag.

Vilji viðskiptavinur hætta við pöntun eftir að hafa staðfest pöntun í vefverslun er best að hringja í okkur. Við getum þá bakfært pöntunina og endurgreitt hana að fullu. Við sendum vörur frá okkur daglega og því þarf slík tilkynning að koma innan 6 klst. eftir pöntun eða fyrir 13 þann dag sem pöntunin fer í póst. Ef meira en 6 klst. eru liðnar frá pöntun eða klukkan orðin 13 og pöntun farin í póst greiðir viðskiptavinur sendingarkostnaðinn kjósi hann að hætta við pöntun. Ekki verður endurgreitt fyrr en varan hefur skilað sér til okkar.

Ef viðskiptavinur vill skila eða skipta vöru þarf að koma henni til okkar innan 14 daga frá afhendingu. Viðskiptavinur á rétt á að skipta í aðra vöru eða inneignarnótu ef vörum er skilað innan 14 daga eftir afhendingu.

Viðskiptavinur getur farið fram á endurgreiðslu á vörum sem er skilað innan 14 daga en greiðir sjálfur sendingarkostnaðinn ef viðkomandi sendir vöruna til baka. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar að meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta einkenni, eiginleika og virkni. Enn fremur þurfa allir fylgihlutir/Verðmiðar að fylgja með vörum sem er skilað.

Útsölur og aðrar undantekningar við vöruskil:

Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu. Einungis er hægt að skipta útsöluvörum í aðrar útsöluvörur. 

Þegar valinn er bréfpóstur þarf að tryggja að varan komist í gegnum lúguna. Ef það kemur í ljós að varan passar ekki í lúguna greiðir viðtakandi sendingakostnaðinn.

Ef viðskiptavinur fær ranga vöru afgreidda endurgreiðum við vöruna að fullu ásamt sendingarkostnaði eða sendum viðskiptavini rétta vöru eftir að varan hefur skilað sér til okkar.

Öllum pöntunum er dreift af Póstinum eða Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstins og Dropp um afhendingu vörunnar. Verði varan fyrir tjóni í flutningum biðjum við viðskiptavini um að hafa samband við okkur og við leysum málið saman. Eftir að viðskiptavinur hefur veitt vörunni viðtöku er hún alfarið á ábyrgð viðskiptavinar.

Allar sendingar, nema bréfapóstur (kemst inn um lúgu), eru skráðar og fá sendinganúmer frá Póstinum og Dropp. 

Lög og varnarþing

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Við fögnum athugasemdum um þessa skilmála. Ef þér finnst við ósanngjörn að einhverju leiti eða ef eitthvað er óskýrt, hafðu þá endilega samband við okkur og við munum finna leið til að gera alla ánægða.

 Vilji viðskiptavinur falla frá kaupum á vörum hjá okkur hefur hann 14 daga til þess. Hægt er að koma með vöruna í búðir okkar og senda okkur tölvupóst. Við viljum benda fólki á eyðublað í Reglugerð 435/2016 sem hægt er að fylla út og senda okkur.

Komi upp ágreiningur um þessa skilmála er viðskiptavinum bent á að leita til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa
Borgartún 21, 105 Reykjavík
www.kvth.is